15.8.2012
Meðgangan hjá Lucienne gengur mjög vel og um þetta leyti er hún gengin á bilinu 35-39 daga.
Hún hefur þyngst um tæp 2 kg eftir pörun og kviðmál stækkað um 10 cm. Það sér orðið töluvert á henni
nú þegar svo að öllum líkindum á hún eftir að verða mjög sver. Við förum á hverjum degi í hæfilegan göngutúr til að hún haldi sem mestum styrk og þoli þegar að því kemur að gjóta. Set inn mynd fljótlega og skrifa aftur eftir nokkra daga.
Kveðja Sigga

16.8.2012
Mynd tekin í dag 16 ágúst
Lucienne er orðin bústin og komin
mjólk í spenana
26.08.2012
Allt gengur vel og er Luci núna gengin u.þ.b 45-49 daga. Líkaminn breytist ört og hún stækkar orðið mjög hratt núna. Á 11 dögum eða síðan ég setti inn síðustu færslu hér þá hafa 10 cm í viðbót bæst við kviðmálið og hafa þá 20 cm bæst við síðan við pörunina sem er töluvert. Hún þreytist fyrr nú en fyrir nokkrum dögum, henni er frekar heitt þessa dagana og er mjög dugleg að drekka. Einnig hefur hún ástríðufullan áhuga á öllu matarkyns :) Við erum búin að sjá fyrstu hvolpaspörkin en þau eru ennþá lítil og nett.
Hún er ennþá hress og dugleg í daglegu göngutúrunum og við höldum þeim áfram.
Kveðja Sigga
Hún er ennþá hress og dugleg í daglegu göngutúrunum og við höldum þeim áfram.
Kveðja Sigga
02.09.2012
Nú er Luci orðin ansi sver og ekki langt eftir af meðgöngunni. Síðan í síðustu færslu eða fyrir
viku hafa 7 cm hafa bæst við kviðmálið í viðbót. Tíkin er hraust og allt virðist ganga vel en
eins og eðlilegt er þá er hún farin að þreytast. Hún á núna að vera gengin u.þ.b 52-56 daga.
Luci er mjög sátt við hvolpakassann og er farin að fara þangað til að leggja sig. Við smíðuðum mjög
stóran kassa sem er tvískiptur. Annars vegar sjálfur gotkassinn og hinsvegar mun stærra rými þar
sem hvolparnir geta síðar klifrað yfir í, hamast og leikið sér án þess að fara sér að voða.
Þessi aðstaða hefur fengið nafnið Ólátagarður.

Mynd tekin 02.09.2012